Stök frétt

Mynd fengin af heimasíðu rekstraraðila
Umhverfisstofnun auglýsir bráðabirgðaheimild fyrir Ísfélag hf. vegna fiskimjöls- og hrálýsisframleiðslu um borð í frystitogaranum Sólberg ÓF-1. 
Ísfélag óskar eftir bráðabirgðaheimild til að hægt sé að halda áfram starfsemi á meðan starfsleyfi er í vinnslu. Umhverfisstofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til og með 24. nóvember 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið ust@ust.is merktar UST202309-285.