Fjaðrárgljúfur



Umhverfisstofnun, í samstarfi við landeigendur og Skaftárhrepp, vinnur að undirbúningi friðlýsingar Fjaðrárgljúfurs.

Fjaðrárgljúfur er um 1,5 km á lengd og mesta dýpt um 100 m. Það er gott dæmi um virk ferli landmótunar sem hófst í lok síðustu ísaldar fyrir um 10.000 árum og er enn í gangi. Ofan við Fjaðrárgljúfur eru malarhjallar sem benda til þess að jökullón hafi myndast fyrir framan hörfandi jökul og vegna fyrirstöðu sem lá efst í núverandi gljúfri. Lónið hefur fyllst tiltölulega fljótt upp af framburði, en vatnsmiklar og aurugar jökulár áttu síðar auðvelt með að rjúfa sér farveg í undirliggjandi berggrunn úr móbergi. Innst í Fjaðrárgljúfri eru fossar og þó að Fjaðrá sé mun kraftminni en vatnsmiklu jökulárnar í lok ísaldar, þá er landmótun gljúfursins enn í gangi.

Fjaðrárgljúfur hefur mikið fræðslugildi er varðar virka landmótun, þar er gott aðgengi og er svæðið vinsæll áningarstaður ferðamanna. 

Áform um friðlýsingu svæðisins voru auglýst 12. febrúar og frestur til að skila athugasemdum var til og með 11. mars 2024.

Fundargerðir samstarfshóps:
- Fyrsti fundur 18.10.2023
- Annar fundur 10.1.2024