Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um yfirfærslu starfsleyfis Terra Efnaeyðingar hf. yfir á Terra Umhverfisþjónustu hf. 

Engar efnislegar breytingar voru gerðar á starfsleyfunum aðrar en að starfsleyfin hafa nú verið fært á nýjan rekstraraðila, Terra Umhverfisþjónustu hf. 

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar, skv. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.