Hverfjall í Mývatnssveit

Stækkun náttúruvættisins Hverfjalls í Mývatnssveit

Umhverfisstofnun kynnir drög að stækkun náttúruvættisins Hverfjalls í Mývatnssveit. 

Breytingin er unnin að beiðni landeigenda, í samstarfi Umhverfisstofnunar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, landeigenda og Þingeyjarsveitar og felst í að raskað svæði vestan Hverfjalls fellur út fyrir friðlýsta svæðið en óraskað svæði austan Hverfjalls verður innan verndar. 

Fyrir breytingu var svæðið um 3,1 km2 en verður 3,78 km2 eftir breytingu. Skoða breytingartillöguna á korti.

Verndargildi svæðisins felst í hinni einstöku jarðmyndun sem Hverfjall er, hringlaga öskugígur, um 1000 m í þvermál, sem rís 90 – 150 m yfir umhverfið. Gígurinn myndaðist fyrir um 2500 árum í þeytigosi í grunnu stöðuvatni. Hlíðar hans eru brattar og þétt settar af vatnsrásum. Hann er í röð fegurstu og reglubundnustu öskugígamyndana sem gefur að líta á Íslandi og talinn í röð þeirra stærstu sinnar tegundar á jörðinni. Hverfjall er syðsti hluti a.m.k. 1800 m langrar gossprungu. 

Tengd skjöl