Málþing: Náttúran og vellíðan á efri árum

23. október 2024 frá kl. 09:30 - 12:00 í Norræna húsinu

Umhverfisstofnun stendur fyrir málþingi um mikilvægi náttúrunnar fyrir líkamlega og andlega heilsu eldra fólks. Málþingið er hluti af ERASMUS+ verkefninu Grey4Green.

Á dagskrá málþingsins verða spennandi fyrirlestrar og pallborðsumræður með þátttöku fjölbreyttra sérfræðinga í málefnum aldraðra og umhverfismála. 

Boðið verður upp á létta hressingu.

Málþinginð erður einnig í beinu streymi.

Málþingið er opið öllum en nauðsynlegt er að skrá sig

Um Grey4Green

Umhverfisstofnun er þátttakandi í ERASMUS+ verkefninu Grey4Green. Verkefnið snýst um að þróa sjálfboðaliðaverkefni í náttúruvernd meðal fólks sem er eldra en 60 ára. Markmið Grey4Green er að hvetja þennan aldurshóp til virkrar þátttöku í umhverfismálum (e. active ageing) og stuðla þannig að félagslegum og persónulegum vexti þeirra.

Helstu verkefni

Undanfarin 2 ár höfum við hjá Umhverfisstofnun unnið að verkefninu með félagasamtökum, sveitarfélögum og sjálboðaliðum úr röðum eldri borgara. Við höfum boðið upp á námskeið í þjálfun fyrir hugsanlega skipuleggjendur sjálfboðaliðaverkefna, skipulagt þátttöku í alþjóðlegum vinnsustofum um sjálfboðaliðastarf í náttúruvernd og skipulagt starf sjálboðaliða á Íslandi.

Um málþingið

Lokahnykkur í þátttöku Umhverfisstofnunar í verkefninu er að skipuleggja málþing þar sem við leggjum áherslu á mikilvægi náttúrunnar fyrir líkamlega og andlega heilsu aldraðra. Markmið málþingsins er að við hvetja bæði hagsmunaaðila og eldri borgara til að taka virkan þátt í samræðum um náttúruna og umhverfisverkefnum.