Á Austurlandi

8. september kl. 13:00 - Frá litlum læk til stórra uppgötvana - Fjölskylduganga í Helgustaðanámu með landverði

Sunnudaginn 8. september klukkan 13:00 mun landvörður leiða göngu í Helgustaðanámu. Farið verður frá bílastæði við salernishús.  

Helgustaðanáma er gömul silfurbergsnáma í landi Helgustaða í Fjarðabyggð sem var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975. Helgustaðanáma er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi en þar var silfurberg grafið úr jörðu frá því á 17. öld og fram á fyrri hluta 20. aldar. 

Í göngunni má líta silfurbergsæðar, silfurlækinn og minjar um námuvinnslu. Hugrakkir fá tækifæri til að fara inn í námugöngin í fylgd landvarðar. Ath. að farið er í göngin á eigin ábyrgð og að börn verða að vera í fylgd fullorðins umsjónaraðila.

Vegalengd: 1 km
Hækkun: 60 m
Tími: 1,5 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri. Nauðsynlegt er að hafa hjálm og höfuðljós eða vasaljós þegar farið er í námugöngin.

16. ágúst kl. 13:00 (föstudagur) - Hvað er völvan að vernda? – Fjölskylduganga í Hólmanesi með landverði

Föstudaginn 16. ágúst kl. 13:00 mun landvörður leiða göngu í friðlandinu og fólkvanginum í Hólmanesi. Gangan hefst á áningarstaðnum við Hólmaháls.

Ofan við Hólmanes hvílir völva sem verndar Reyðarfjörð fyrir árásum. En skyldi hún hjálpa okkur að vernda náttúruna í Hólmanesi? Í göngunni verður meðal annars boðið upp á  fjölbreytta náttúru, leik í fjöru og spjall við tröllkarl.

Vegalengd: 3,5 km á göngustígum sem eru þröngir og ósléttir.
Hækkun: 125 m
Tími: 2 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri. Gott er að hafa með sér vatn að drekka.

2. ágúst kl: 13:00 (föstudagur)– Frá litlum læk til stórra uppgötvana - Fjölskylduganga í Helgustaðanámu með landverði

Föstudaginn 2.ágúst klukkan 13:00 mun landvörður leiða göngu í Helgustaðanámu. Farið verður frá bílastæði við salernishús.  

Helgustaðanáma er gömul silfurbergsnáma í landi Helgustaða í Fjarðabyggð sem var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975. Helgustaðanáma er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi en þar var silfurberg grafið úr jörðu frá því á 17. öld og fram á fyrri hluta 20. aldar. 

Í göngunni má líta silfurbergsæðar, silfurlækinn og minjar um námuvinnslu. Hugrakkir fá tækifæri til að fara inn í námugöngin í fylgd landvarðar. Ath. að farið er í göngin á eigin ábyrgð og að börn verða að vera í fylgd fullorðins umsjónaraðila.

Vegalengd: 1 km
Hækkun: 60 m
Tími: 1,5 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri. Nauðsynlegt er að hafa hjálm og höfuðljós eða vasaljós þegar farið er í námugöngin.

Fræðsluganga á Barðsnesi laugardaginn 22. júní 

Mæting við Safnahúsið (rautt hús) í miðbæ Neskaupstaðar kl.10:00 þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.

Landvörður verður með fræðslu um hið friðlýsta svæði við landtöku á Barðsnesi.

Gengið frá Barðsnesbænum og út í Mónesskarð. Þaðan að Rauðubjörgum og inn að Barðsnesi aftur. Róleg ganga.

Báturinn tekinn til baka um kl. 18:00.