Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Samantekt fyrir 2025

Inngangur

Umhverfis- og orkustofnun er falið að fara með eftirlit með markaðssetningu, afhendingu, merkingum og gerð og samsetningu plastvara sem falla undir laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með samræmdum hætti á landinu öllu. Eftirlit er framkvæmt í samræmi við eftirlitsáætlun sem stofnunin setur fram til eins árs í senn. Eftirlitsætlun fyrir árið 2025 var samþykkt og birt á vef stofnunarinnar í apríl 2025.

Markmið eftirlitsins er að fylgja eftir banni og endurgjaldskröfu á burðarpokum og tilteknum einnota plastvörum og fá yfirlit um stöðu mála hjá atvinnulífinu. Eftirlitsþættir fyrir árið 2025 voru þeir sömu og fyrir 2024 eða eftirfarandi:

  • Bann við afhendingu burðarpoka án endurgjalds óháð efnisvali, sbr. 37. gr. b.
  • Bann við afhendingu burðarpoka úr plasti, sbr. 37. gr. c.
  • Bann við að setja tilteknar plastvörur á markað, sbr. 37. gr. e.
  • Bann við afhendingu tiltekinna einnota plastvara  án þess að endurgjald sé sýnilegt á kassakvittun, sbr. 37. gr. f.

Þann 1. júlí 2025 tóku gildi nýjar reglur um gerð og samsetningu einnota plastvara sbr. 37. gr. g. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir en reglurnar lúta að áföstum plasttöppum á drykkjarumbúðum. Seint á eftirlitsárinu, þann 5. nóvember 2025, tók jafnframt gildi ný reglugerð nr. 1144/2025  um plastvörur sem sett er á grundvelli 37. gr. d. laganna og fjallar um merkingar tiltekinna plastvara. Nýjar reglur voru ekki meðal eftirlitsþátta ársins 2025 en koma til skoðunar í eftirliti næsta árs.

Eftirlitsþegar

Vegna reynslu fyrri eftirlitsára var áhersla lögð matsölu- og veitingastaði m.a. til að skerpa á skyldum um endurgjald tiltekinna einnota matar- og drykkjaríláta úr plasti. Val á eftirlitsþegum byggði á fyrirliggjandi upplýsingum hjá Umhverfis- og orkustofnun, upplýsingum um fyrirtæki með starfsleyfi frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaganna, upplýsingum um fyrirtæki frá Skattinum og almennri leit á netinu.

Sama fyrirkomulag og áhersla var höfð og við valið á eftirlitsþegum árið 2024, þ.e. að reyna að ná til fyrirtækja sem starfrækja fleiri en eina starfsstöð en einnig var farið í eftirlit á landsbyggðinni. Að auki var framkvæmt eftirlit með netverslun í fyrsta sinn. Fyrirtæki voru valin af handahófi og urðu sjö veitingasölur fyrir valinu, ásamt einni verslun sem jafnframt er veitingasala og einni netverslun. Reynt var að hafa fjölbreytni í tegundum veitingasala til að ná til breiðs hóps svo hægt væri að fá heildræna mynd af stöðu mála.

 Fyrirtæki Starfsemi
 Aktu taktu  Veitingastaður
 Brikk Eldhús    Bakarí
 Bæjarins bestu Veitingastaður
 Define the line sport Netverslun
 Joe and the juice Veitingastaður
 Krua Siam Veitingastaður
 Kvikkí Veitingastaður
 Ikea Verslun og veitingastaður
 Saffran Veitingastaður

Niðurstöður

Nokkur frávik voru frá ákvæði 37. gr. b. um bann við afhendingu burðarpoka án endurgjalds en auk þess reyndi í einu máli á bann við afhendingu burðarpoka úr plasti sbr. 37. gr. c. Má segja að fyrirtæki séu almennt meðvituð um að óheimilt sé að afhenda burðarpoka úr plasti á sölustöðum vara og eru fyrirtæki alla jafna hætt að afhenda plastburðarpoka. 

Jafnframt mátti sjá í eftirlirlitsmálum ársins að dregið hefur úr umfangi vara sem bannað er að markaðssetja sbr. 37. gr. e og má skýra það með árangri eftirlits fyrri ára þar sem heildsölur sættu eftirliti og virðast birgðir af bannvörur, svo sem plaströr og plasthnífapör, sem sett höfðu verið á markað fyrir gildistöku regluverksins nú að mestu vera uppurðin. Í eftirliti ársins fannst hins vegar í fyrsta skipti plast sem er niðurbrjótanlegt með oxun. Fyrirtækið hafði fengið rangar upplýsingar frá framleiðanda vöru um umhverfislegan ávinning af vörunni. Í slíkum málum er fyrirtækjum leiðbeint um betri valmöguleika og gerð er krafa um fyrirtæki komi vörunum sem um ræðir í réttan farveg.

Algengasta frávik í eftirliti reyndist vera hjá veitingasölum vegna endurgjaldskröfu tiltekinna einnota matar- og drykkjaríláta sem kveðið er á um í 37. gr. f. Allar átta veitingasölurnar sem sættu eftirliti þurftu hér að bæta úr. Gætir tregðu hjá fyrirtækjunum til að framfylgja endurgjaldskröfu 37. gr. f. laganna. Hjá nokkrum eftirlitsþegum var mikill vilji til að minnka notkun plastumbúða og má sjá að úrval umbúða undir matvæli sem ekki innihalda plast hefur aukist til muna. Þrátt fyrir það reynist fyritrækjum erfitt að komast algjörlega hjá því að notast við plast og þurfa því að leggja á sérstakt gjald vegna plastumbúða.

Úrbótum er ekki enn lokið í fimm málum sem skýrist fyrst og fremst af tregðu rekstraraðila til þess að fullnægja endurgjaldskröfu 37. gr. f laganna og leggja á sérstakt gjald. Hafa þvingunarúrræði verið áformuð í fjórum málum við birtingu þessarar samantektar.